02. nóvember 2008 klukkan 20:10
Jæja góðan daginn....

Sko þegar ég er búin að plana rólega helgi, þá enda ég alltaf á djamminu.

En það var kannski eðlilegt þessar helgi þar sem eitt af aðaldjömmum ársins var háð í Hofsós City.

Þetta mun hafa verið hausfagnaður hestamanna. Mikið glens og grín var háð meðal annars þar sem keppt var í smala á sviðinu og voru vel valin lið í því og auðvitað unnu Fagranes hjúin.

Einnig voru veitt verðlaun og hlutu Ásta mín og Eyrún mín veðlaunin í unglinga og ungmennaflokki.

Við fögnum því auðvitað og gefum þeim knús þegar við hittum þær.

Ég hef verið mikið að spá í þetta hverskonar partý fíkill ég er að verða, ég er búin að vera að djamma síðustu 3 helgar í röð.

En ég held að það sé vegna þess að vinir mínir koma svo dreift norður, einn um hverja helgi og auðvitað þarf ég að djamma með þeim öllum.

Björn litli var svo heppinn að verða fyrir valinu á laugardaginn og fífluðumst við eins og ég veit ekki hvað. Hann er góður, segist vera búinn að finna handa mér kall fyrir sunnan og allt saman. Ég verð að fara að suður og kíkja á málið fljótlega
Knús í bili
Stefanía Inga Sigurðardóttir
31. október 2008 klukkan 11:42
Sko, ég veit að ég hef ekki bloggað mjög lengi!

en ég þarf að fara að skjóta inn svona einu og einu kommenti annað slagið. Það sem gerst hefur síðan í maí er að ég var að vinna á Vatnsleysu út ágúst, en þá byrjaði ég í FNV aftur og fór á sálfræði og félagsfræðibraut.

Ég reikna með að útskrifast um jólin 2009. Ég fór í fyrstu og aðrar göngur eins og alltaf og hafði auðvitað litla dýrlega voffann minn með mér sem er dýrlegur á tvennan hátt!

En allavega núna undanfarið hefur snjóað eins og heimurinn sé að farast eða eitthvað. Það eru bara geggjað háir skaflar allstaðar og hvað þá heima hjá mér uppá Veðramóti, þar er allt á kafi, túnin og allt. Aumingja hrossagreyin brölta um á maganum!

En allavega núna er ég búin í miðannarprófum og núna fer að styttast í jólaprófin. Ég er bæði í skóla og vinnunni minni í Minjahúsinu sem felur í sér að þrífa eftir forleyfafræðingana á efri hæðinni. Þetta er nú ekki mikil vinna, en samt smá aur í vasann.

Akkurat þessa stundina er ég að vinnað að ritgerð um hnykklækninar sem er efni í sálfræði 213 sem er taugasjálfræði. Ég held að ég eigi eftir að gera langa ritgerð því það er shitt mikið til af heimildum um þetta dót... heppin ég! En mesta frétt síðustu 2 1/2 ára er að ég losna sennilega við meirihlutann af teinunum í desember!


Vá hvað ég á eftir að brosa breitt og fallega!!!!!!



En allavega, ég ætla að fara núna og fá mér hádegis lunch áður en ég fér aftur í skólann. Það sukkar að vera í skólanum til 4 á föstudögum þegar allir eru búnir klukkan 12:40

Heyri í ykkur fljótlega!
Stefanía Inga Sigurðardóttir
12. maí 2008 klukkan 21:47
Já það er rétta orðið, það er búið að vera geggjað gott veður í dag! 15°c og engin sól, kannski sem betur fer, því þá hefði ekki verið líft úti. Er búin að vera ríða út í dag, en samt fór meirihlutinn af deginum í það að járna. Núna er farið að styttast í próf hjá Hafdísi og Binna, þannig að við Hafdís erum að járna hestana hennar upp.
Já, ég er ekki að fara í próf, sem betur fer ekki, ég hefði ekki höndlað það. En ég féll uppá Hólum ef það fór framhjá einhverjum, þannig að ég er ekki í verknámi, heldur bara að vinna á Vatnsleysu.
Svo er ég hætt í Minjahúsinu, vegna verkefnaskorts, það er dálítið fyndið, eða það finnst mér. Ég hélt að það væru til verkefni handa mér út maí, en svo reyndist ekki.
Í sumar verð ég á Vatnsleysu, en ég veit ekkert hverjir verða að vinna með mér. En svo þarf ég líka að finna mér einhverja aðra vinnu, því það er alveg ljóst að það lifir enginn af launum tamningamanns!
En svo í haust er ég að fara aftur í FNV. Já, það er ákveðið, ég ætla að skipta um braut og fara á félagsfræði/sálfræði braut, því að þá þarf ég ekki að vera að bisast við þessa bévítanz stærðfræði. Ég ætla að reyna að fara á morgun og fá eitthvað metið sem ég tók uppá Hólum og fá þá að sleppa við eitthvað að áföngum, þannig að ég geti útskrifast sem stúdent næsta vor. Það verður geggjað. En hvað á maður svo að gera, það er alltaf spurning. Einnig er það seinnitíma vandamál....
En allavega, heyri í ykkur seinna
Knús
Stefanía Inga Sigurðardóttir
29. febrúar 2008 klukkan 18:28
Vá, það var eins og hendi væri veifað og það er búið að vera geggjað gott veður síðustu daga!!!!! Ég hef líka verið að ríða út nánast allan daginn síðustu daga og núna skot gengur með flest hrossin sem ég er með og þau batna með hverjum deginum. Svona á lífið að vera. En vitið þið að ég komst að því að ég er að vinna alltof mikið og er í alltof mörgun vinnum :S Ég er að vinna hálfan daginn á Vatnsleysu, svo er ég auðvitað í Minjahúsinu og svo er ég að vinna í sjoppunni í reiðhöllinni ef eitthvað er um að vera og svo er ég að kenna í barna og unglingastarfinu aðra hverja helgi, en það er nóg að gera í því að skipuleggja það inná milli tímanna. Svo þarf ég auðvitað að sinna henni Tátu minni.... Þetta er alveg brjálað, enda hef ég ekki sinnt Minjahúsinu eins vel og ég ætti að gera.
En allavega, fréttir af mér, ég er búin að taka Sókrates minn inn og járna hann. Tók skeifnasprettinn í dag og það var alveg yndisleg tilfinning. Ég frétti frá Lisu um daginn og hún segir að verknámið gangi vel á Sólvangi og er ég mjög fegin að heyra það. Einnig kemur Rúnar stundum í heimsókn yfir veginn í kaffi, en ég hef ekkert farið til hans ennþá. En þetta er í lagi, við erum bara búin að vera hérna í nokkra mánuði og nokkrir mánuðir eftir.
Planið um helgina er ekki mikið, númer 1,2 og 3 er að kenna í barna og unlingastarfinu og svo er það að auðvitað árshátið Léttfeta, en ég er ekki búin að pannta mér miða, ég var of sein... Svo mikið að gera að ég gleymi mér. En Hjördís er á leiðinni heim og hún ætlar að joena mér um helgina, vegna þess að mamma er heldur ekki heima lengur. Hún er loksins orðin frísk gamla konan.
En nóg af slúðri í bili, þarf að halda áfram að vinna. Seeya
Stefanía Inga Sigurðardóttir
15. febrúar 2008 klukkan 16:29
Stefanía Inga Sigurðardóttir
09. febrúar 2008 klukkan 15:49
Úfff, ég var að vinna í morgun á Vatnsleysu. Það var ekkert hægt að ríða út í dag, allavega ekki ég, því að ég er aðalega með lítið tamin hross og það er oft ekkert gaman að fara út á þeim í svona mikið rok.
Ég verð að fara að temja þetta meira
Þannig að ég var bara að dunda mér eitthvað. Það endaði með því að Bjössi fór inn á Krók með þjálfunarhestana hans Brynjólfs, til að hann gæti haldið áfram fyrir próf. Það er nú farið að styttast í það.
Núna sit ég út í Minjahúsi og er í skráningu, utan við að Sarpur (forritið sem ég skrái fornleyfaskráninguna í) vill ekki virka frekar en venjulega!
Þetta er endalaust vesen, alveg frá því að ég byrjaði í skráningunni. Það er alltaf eitthvað bilað, þannig að ég get ekki unnið.
En þetta er samt svolítið nodó að sitja hérna með ipodinn og með tónlistina í botni.
Í kvöld eru þorrablót út um allt og var með boðið á tvö um þessa helgi,
en það sem verra er, er að þau eru bæði í kvöld. En það endaði með því að ég ætla á sameiginlega blótið í Íþróttahúsinu.
En það versta er að það er spáð svo rosalega vondu veðri í nótt að mig langar ekkert að vera drukkin, svona bara til að komast heil heim. 
Svona til að rifja upp fyrir þeim sem ekki hafa umgengist mig mikið undanfarið, þá á ég hund í dag sem heitir Táta og hún er rétt að verða 7 mánaða.
Algjörlega ofvirk og alltaf æst. Svo tók ég meiraprófið í sumar, bæði vörubíl og trailer.
Það gerðist eitthvað meira í sumar. Eins og ég var að vinna aftur í Glaumbæ, en ég held að ég geri það ekki annað sumar, er eiginlega komin með hálfgerða leið á þessu. Langar til að vinna á Vatnsleysu fram að landsmóti og taka mér svo langt sumarfrí og fara í hestaferðir og skemmta mér. 
Jæja, þarf að restarta tölvunni, þannig að ég blogga bara meira seinna. Hafiði það got.
Stefanía Inga Sigurðardóttir
08. febrúar 2008 klukkan 23:03
Komið þið sæl öll sömul. Ástandið hefur verið svo slæmt síðasta ár að ég hef bara einfaldlega ekki haft tíma til að blogga.

Allt Hólum að kenna, alveg crazy að gera.

En fyrst að ég er hætt þar og bara farin að vinna, þá er alveg komin tími til að blogga aðeins.

Ég tók mig til áðan og hreynsaði allt út af blogginu mínu og ætla nú að byrja að nýju, með nýju lúkki og síðu fulla af fréttum af mér og mínum vangaveltum. Það gerist nefnilega margt hjá mér. En allavega, það er að koma svefntími núna. Ætla að mæta í vinnuna í fyrramáli ef það verður ekki alveg brjálað veður.

Góða nótt allir, og skemmtið ykkur fallega á djamminu
Stefanía Inga Sigurðardóttir